Um ITS Ísland


Intelligent Transportation System (ITS) er bæði safnhugtak fyrir upplýsingatæknihlið samgangna- og flutningsgeira og formlegur félagskapur sérfræðinga í tengdum atvinnugreinum um allan heim. Greinarnar eru samtvinnaðar og hafa oft sömu markmið en grunnstarfsvettvangur þeirra er ólíkur svo tengingar hafa skort þeirra á milli. ITS á Íslandi er hugsaður sem vettvangur fyrir þessa geira hérlendis og tenging yfir í sambærileg félög erlendis.

Markmið félagsins er að skapa vettvang til að styðja faglega hagsmuni opinberra og einkarekinna fyrirtækja sem og fræði- og vísindamanna á sviði upplýsingatæknivæddra flutningskerfa (ITS) í samvinnu við opinbera aðila.

Stofnfundur ITS á Íslandi fór fram í september 2019.

Stjórn félagsins er kosin á aðalfundum og er skipuð af:

Formaður – Lilja G. Karlsdóttir VSB verkfræðistofa
Gjaldkeri – Davíð Guðbergsson VSÓ
Ritari – Berglind Hallgrímsdóttir Efla
Meðstjórnandi – Anna Guðrún Stefánsdóttir Verkís
Meðstjórnandi – Daði Áslaugarson Strætó
Meðstjórnandi – Grétar Þór Ævarsson Reykjavíkurborg
Meðstjórnandi – Nicolai Jónasson Vegagerðin

Varamenn
Bjarni Rúnar Ingvarsson Reykjavíkurborg
Nils Schwarzkopp Reykjavíkurborg
Brynjar Ólafsson Mannvit

Almenningssamgöngur